hæhæ, var að rekast á undirsíðu hjá www.body.is og þar er hægt að reikna út þoltölu sem mér finnst rosalega sniðugt
Markmiðið hjá mér að er að hlaupa 3,0 km á 12 min og þá samkvæmt þessu verð ég með ágæta þoltölu en aðsjálfsögðu langar mig að vera með mjög góða þoltölu og þá á ég að geta hlupið 3,7 km þá fæ ég 52,9 í þoltölu sem er mjög gott! en ég ætla að byrja á þessu... ég fer í kvöld að kaupa mér kort í Baðhúsið, er búin að fá staðfestingu á skólavist svo ég geti keypt mér skólakort
Þannig að í kvöld þá ætla ég að ath hvað ég get hlupið mikið á 12 min!
| Aldur |
Mjög Slakt |
Lélegt |
Sæmilegt |
Ágætt |
Gott |
Mjög gott |
| 13-19 |
<35.0 |
35.0 - 38.3 |
38.4 - 45.1 |
45.2 - 50.9 |
51.0 - 55.9 |
>55.9 |
| 20-29 |
<33.0 |
33.0 - 36.4 |
36.5 - 42.4 |
42.5 - 46.4 |
46.5 - 52.4 |
>52.4 |
| 30-39 |
<31.5 |
31.5 - 35.4 |
35.5 - 40.9 |
41.0 - 44.9 |
45.0 - 49.4 |
>49.4 |
| 40-49 |
<30.2 |
30.2 - 33.5 |
33.6 - 38.9 |
39.0 - 43.7 |
43.8 - 48.0 |
>48.0 |
| 50-59 |
<26.1 |
26.1 - 30.9 |
31.0 - 35.7 |
35.8 - 40.9 |
41.0 - 45.3 |
>45.3 |
| 60+ |
<20.5 |
20.5 - 26.0 |
26.1 - 32.2 |
32.3 - 36.4 |
36.5 - 44.2 |
>44.2 |
Þoltala (VO2 max): Hámarkssúrefnisupptaka eða þoltala (VO2 max) er mesta súrefnisupptaka í ml á mínútu per kg líkamsþyngdar. Þ.e. hámarksmagn súrefnis sem líkaminn innbyrðir við hámarksáreynslu. Þoltalan segir til um hversu vel viðkomandi getur komið súrefni til vöðvafrumanna og niðurbrotsefnum frá þeim. Almennt er talið að þoltalan sé besta fáanlega mælieiningin á líkamsúthald og er því oft talað um hana sem hinn gullna staðal í að meta líkamshreysti og þrek. |
hvað getið þið hlaupið á 12 min?