Ég byrja í fjarþjálfun í dag og ég hlakka svo til

ég ætla því að byrja upp á nýtt... það eru
3 vikur í næstu viktun og
5 vikur þangað til að markmiðinu er náð...rosalega er stutt í þetta!! Fjarþjálfunin er svo sniðugt finnst mér, ég er komin með plan fyrir næstu 3 vikurnar og ég veit hvað ég á að gera á hverjum einasta degi

og jáá.. ég var að byrja í Thai boxi sem er kennt þrisvar í viku

Ég fór í Thai box á laugardaginn og ég er að deyja úr harðsperrum í kálfunum! úff! vorum að sippa og boxa til skiptist,ekkert smá erfitt!
Svo þarf ég að vera rosalega dugleg í matarræðinu!!
Matur:
kl.12.00 - gróft rúnstykki m/skinku og osti + epla trópí
kl.14.30 - ávaxta smoothie frá Trópí
Hreyfing:ég fer í ræktina í dag og lyfti (hendur) + 25min brennsla