Hópblogg :)
22.03.2012 21:49:19 / Elín Rún

22.mars !

Góða kvöldið!

Þá er ég búin að skipta um þemalit á síðunni, setja nýja mynd efst uppi og nýja könnun! :D
Ég get nú alveg sagt ykkur það að ég er komin í páskafíling!! :D 
Ég get ekki hætt að hugsa um þetta páskaegg!! naamm namm..

Margrét Edda Gnarr er ein af mínum bestu vinkonum og er að fara að keppa í 4 skiptið í Módel Fitness um páskana og ég er svo spennt! Hlakka svo til að hvetja hana áfram :D
Hér er hún á Arnold Classic 1.mars sl. og lenti í 4.sæti!! :D

Hún er svo sannarlega mín fyrirmynd! Sjá þessar fallegu kvenlegu línur!! 
Ég er svo heppin að skvísan ætlar að taka mig í einkaþjálfun í apríl/maí þar sem ég verð brúðarmey bestu vinkonu minnar þann 9.júní!! Ég ÆTLA að geta valið mér hvaða kjól sem er takk fyrir!! :D

Jáááááá ég vil komast í svona fallegan brúðarmeyjarkjól án þess að hafa áhyggjur af ,,björgunarhringnum'' !! 

ÉG GET-ÆTLA-SKAL :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.02.2012 18:37:57 / Elín Rún

Útihlaup!

Ég er alveg ótrúlega ánægð með mig!! Ég fór út að hlaupa með Freyju tíkina mína rúmlega 5 km!! og í þessum kulda!! En reyndar var mér ekkert kalt, því ég keypti mér í dag hlaupagalla frá Asics :D Er ótrúlega ánægð með gallann minn :D Hvernig gengur hjá ykkur?

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.01.2012 21:10:55 / arangur101

2012!

Góðan og blessaðan daginn! Ég bið forláts að hafa ekki verið að skrifa neitt hérna... en það er búið að vera mikið að gera! Flutt í Kópavoginn kæra fólk:) Hef ekki æft mjög mikið úti vegna snjókomu og ófærðar en sh***t hvað maður þarf að fara rífa sig í gang! Nýjar upplýsingar! Vissuði að það er komið world class í turninn á smáratorgi?;) -S

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.01.2012 14:23:09 / Elín Rún

2012!!! :)

Gleðilegt nýtt HEILSUÁR :) Ég byrjaði daginn á því að fá mér hafragraut með engum sykri, heldur setti ég salt og kanil útí, ég er mjög sátt með mig þar sem ég sleppi oft morgunmatnum! Ég fer svo í fyrsta Trimform tímann hjá Hrönn á morgun og ég keypti mér árskort í Baðhúsið á 29.900!!! Vúhú :D Og núna ætla ég að halda áfram að gera nýju íbúðina mína fína áður en ég byrja aftur að vinna á þriðjudaginn!! :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2011 01:14:24 / Elín Rún

Trimform Hrönn

Ahh.. ég er svoo spennt!! Ég er að byrja í Trimform hjá Hrönn og byrja 2.janúar :D Vinkona mín úr vinnunni er búin að missa 15 kg og 50 cm á fínum tíma, hún breytti matarræðinu aðeins með því og fór af og til í ræktina og svo er hún ennþá að fara af og til í Trimformið hjá henni.. Annars er búið að vera BRJÁLAÐ að gera í Desember :/ úff.. flutningur og fengum LOKSINS netið,heimasímann og sjónvarpið í fyrradag svona rétt fyrir jólin haha! og við fluttum fyrir tæplega mánuði síðan takk fyrir! Þurftum að spassla og mála alla íbúðina og eigum smá eftir meira að segja.. ég er búin að vinna svo mikið og taka mikla yfirvinnu.. enda tók ég mér viku jólafrí til þess að slaka á og hafa það gott bara jeiij :D og ég er komin í JÓLAFRÍ :D byrja aftur í vinnunni á næsta ári jeiiij haha.. :D Árið 2012 er málið!! klárlega góðir hlutir að fara að gerast þá, þetta verður gott HEILSUÁR :D Gleðileg jól skvísur og hafið það ótrúlega gott :D

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2011 20:51:35 / arangur101

JÓLAFEITABOLLA!:D

Hvað! Eruð þið allar dánar eftir smákökuát? Ég allaveganna er búin að vera æfa í desember og borða hollt í máltíðum EN leyfi mér að borða smákökur og svona gotterí þegar mig langar í það:) Ég borða lítið brauð og svoleiðis (fer illa í mig bara) ..... ég er orðin frekar spennt fyrir jólunum, en mikið stress í gangi...flytja í bæinn eftir jólin og fara í nýjan skóla og svona...stresssssöööööööð! En desember er mánuður til nautna og matar og ekki hafa of miklar áhyggjur af þyngdinni í desmember elskurnar!:) Gangi ykkur vel:) -

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.12.2011 10:13:28 / Sigrún

Úps!

Vá, það er búið að vera svo hrikalega mikið að gera að ég er bara ekkert búin að spá í viktinni, hvað þá þessu bloggi! Steig á viktina í morgun og var ekki sátt, 87 kg, semsagt +2 síðan síðast. Af hverju er miklu auðveldara að þyngjast en léttast???

En það þýðir ekki að drolla, nú verður bara tekið á því!

Ég er samt soldið að pæla með þessa síðu, stelpur. Mér finnst hún ekki alveg nógu markviss. Gætum við ekki sett okkur einhverjar reglur til að framfylgja markmiðum okkar? Þannig að það væri enn meiri hvatning að halda sig við efnið. Bara svona pæling.

Þangað til næst!
Sigrún

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.11.2011 15:30:24 / arangur101

Hvernig gengur?

Jæja! Nú er ég að forvitnast hvernig gengur hjá ykkur öllum? Allar auðvitað mjög busy..ég t.d. að læra undir lokapróf:) SVO hvernig gengur?

» 5 hafa sagt sína skoðun

17.11.2011 10:38:13 / arangur101

Dagur 4 :)

Jæja, ég hef ekki skrifað matardagbækurnar síðustu daga en ég er ekkert búin að svindla síðan ég byrjaði á mánudaginn:) Búin að borða bara hollt, ekkert gos,nammi eða óhollan mat:) Óhollasta sem ég hef fengið er heilhveiti fajita með hakki og grænmeti! Það er ekki óhollt!:D En er með rosalegan hausverk í dag..fór ekki í skólann..skil ekki hvað er málið! Kannski bara þreyta en ég held mig við matarræðið þótt ég sé ekki að hreyfa mig strax=) Matardagbók síðustu daga (nokkurn vegin ) Morgunmatur: Cheerios m.léttmjólk. Morgunkaffi: Jógúrt,skyr eða hleðsla Hádegismatur: Smalabaka, grænmeti, ávextir, kjúklingur ... Kaffitími: Hleðsla, ávöxtur, grænmeti ../smá rúsínubrauð Kvöldmatur: Heilhveiti fajita, ..man ekki hina dagana..vá! En vonandi kemst ég almennilega í gang með hreyfinguna fljótlega!:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.11.2011 20:43:32 / arangur101

Vika ''1''- NÝ BYRJUN!

Heyriði mig nú! Núna er veikindin búin að yfirgefa mig, þau ákváðu að fara aftur heim til sín um helgina. Ég æfði ekkert í dag, enda vil ég ekki að mér slái niður en ég er búin að standa mig svo sannarlega vel í matarræðinu í dag.... og skólanum. Guð minn GÓÐUR , það var erfitt að mæta í skólann eftir meira en 1 1/2 viku af veikindum þótt ég lærði heima.... beint í próf góðan dag! En hér er matardagbókin fyrir daginn:) Morgunmatur: Cheerios með léttmjólk. Lýsi og d-vítamín. Morgunkaffi: Hleðsla Hádegismatur: Brún hrísgrjón, kjúklingur,kál,paprika,spergilkál og blómkál. VATN! Síðdegiskaffi: Banani, vatn (búin að vera svöng í dag..borðaði ekki alveg nóg í hádeginu og síðdegiskaffinu..note to self hafa meira með á morgun!) Kvöldmatur: Smalabaka án bauna... s.s. grænmetisbaka sem mútta gerði (ÆÐI..ekkert brauð,hveiti eða neitt..bara grænmeti og ákveðin sósa)..hún reyndar skellti nokkrum sænskum kjötbollum þarna ofan í (afgangar)... oooog svo fékk ég mér lúku af cheerios bara nú í þessu:) En stelpur, hvernig gengur hjá ykkur? :)

» 5 hafa sagt sína skoðun

13.11.2011 18:58:26 / Elín Rún

Millimáltíð!

Er með snilldar millimáltið sem mig langar að deila með ykkur! Lífrænt maíis poppkex og lífrænt hnetusmjöt og vatn mmmmh! Það besta sem ég fæ :D Hvað með ykkur? leynið þið á einhverri góðri millimáltíð? :D

» 4 hafa sagt sína skoðun

10.11.2011 17:48:26 / arangur101

HA?

Allt í lagi... man ekki hvort ég hef minnst á það að þyngdin hjá mér sveiflast mjög oft... get aldrei sagt með vissu hvað ég er þung nema rétt eftir að ég stíg á vigtina, og eins og hjá öllum er þyngdin mismunandi frá morgni til kvölds. En á mánudaginn í síðustu viku þegar ég byrjaði í átakinu var ég í mínu þyngsta.78kg...var mælt reyndar um miðjan dag/kvöld minnir mig... og ég hef verið lasin og að éta ekki beinlínis það hollasta en ég mældi mig áðan eftir sturtu..eftirmiðdegi..og ég er 75,6kg. Þetta sýnir sveiflunar, er alls ekki búin að grennast finnst mér... en held að allir þurfi að passa sig svolítið á svona. Fylgjast með hvort að þetta sé hollur missir eða ekki. Ég er lasin og borða lítið og ekki mjög hollt þannig ég hef tapað vökva og búin að léttast... ekki fara bara eftir vigtinni elskurnar mínar! Hún segir ekki allt! -Sóley

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.11.2011 14:04:04 / arangur101

þetta er allt að koma.

jæja, Í dag steig ég á viktina og er komin niður í 92kg :d ... en 19.okt var ég tæp 95, ekki slæmt. Samt er ég að reyna lifa eins eðlilegu lífi og mögulegt er. Ég fer út í göngutúra, geri æfingar heima og hef minnkað aðeins skammtastærðirnar hjá mér. Leyfi mér smá nammi einstaka sinnu en löngunin hefur minkað mikið. Ahh mér líður vel :d 


Hvernig gengur hjá ykkur stelpur?


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.11.2011 20:31:04 / arangur101

Vika 1.... MISHEPPNAÐIST!

Jæja, í dag er vika2. Vika 1 liggur við telst ekki með..náði að æfa fyrstu 3 dagana svo varð ég bara lasin og er það ennþá. Át jukk og sukk og vikan liggur við telst ekki með! Þegar mér batnar þá verð ég að drífa mig af stað! Fer tvisvar til útlanda næsta vor og vil endilega vera í mínu besta formi!:) -Sóley

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.11.2011 10:34:12 / arangur101

vika 2 fór alveg í vaskin

jæja mér tókst að klúðra viku 2 alveg rosalega! en ég ætla sko aldeilis ekki að klúðra næstu því ég var að skrá mig í átakskeppni hérna á skaganum og potturinn er þvílíkt stór :) það var mæling í gær og ég fékk smá sjokk yfir fituprósentunni minni sem var orðin 32% ! en ég máttu nú alveg búast við því þar sem ég hef nánast ekkert hreyft mig á þessu ári :/ en núna er það bara að spýta í lófanu og fara að púla eins og brjálæðingur næstu 6 vikurnar og vonandi verða nokkrum þúsundköllum ríkari :) en þetta er það sem er að frétta hjá mér ;)

-Margrét

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  9  Alls: 28096
Könnun
Tekur þú inn Omega-3 fitusýrur?



Myndasöfn